Í þessu stefnuyfirliti eru kynntar niðurstöður verkefnisins „Smart adaptation to Rural Realities: Approaches and Practices in Nordic Municipalities and Regions“. Hún byggist yfirferð á norrænum og evrópskum heimildum um fólksfækkun, bakgrunnsrannsókn á byggða- og dreifbýlisþróun og viðtölum við sérfræðinga. Í verkefninu voru haldnar vinnustofur með fulltrúum sveitarfélaga, svæða og ríkisins frá Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Íslandi og Danmörku. Stefnuyfirlitið fjallar um snjallar aðlögun til að takast á við lýðfræðilegar breytingar, með áherslu á endurmat á auðlindanýtingu, aðlögun þjónustu og eflingu nýskapandi lausna fyrir svæði sem glíma við fólksfækkun. Settar eru fram tillögur fyrir stefnumótendur á sveitarstjórnarstigi, landshlutastjórnarstigi og landsvísu á Norðurlöndum um þau tækifæri sem felast í beitingu aðlögunaraðgerða til að mæta lýðfræðilegum breytingum.