Fluggeirinn stendur frammi fyrir þeirri áskorun að draga úr loftslagsáhrifum sínum, og rafknúnar flugsamgöngur (Electric Aviation, EA) hafa komið fram sem álitlegur kostur í þeim efnum. Norðurlöndin leitast við að vera í fararbroddi í innleiðingu þessarar nýju tækni og hafa sett sér metnaðarfull markmið um að gera hana að raunveruleika á næstu árum. En ýmsar spurningar þarf enn að svara og margar áskoranir að leysa áður en rafknúnar flugsamgöngur verða að veruleika. Er pólitískur stuðningur á Norðurlöndum nægilegur til að knýja þessar breytingar áfram? Hvaðan á nauðsynlegt fjármagn að koma? Eru innviðir og tæknilegir möguleikar til staðar? Þessar áskoranir og mögulegar lausnir eru til umfjöllunar í þessu stefnuyfirliti.